Þau félög sem hafa fengið samþykki fyrir skráningu á Almannaheillaskrá þurfa að skila inn upplýsingum, rafrænt eigi síðar en 20. janúar, um móttöku styrkja fyrir nóvember og desembermánuð. Eingöngu um að ræða móttekna styrki án gagngjalds til styrkveitanda þ.e. ekki er heimilt að skrá félagsgjöld, greiðslur fyrir happdrættismiða, auglýsingar o.s.frv. Skila þarf upplýsingum rafrænt í gegnum gagnaskil á þjónustusíðunni www.skattur.is.… Sjá meira →
Category: Fréttir
Skil á upplýsingum um gjafir og framlög 2021 fyrir 20. janúar
Minnum félög sem skráðu sig á Almannaheillaskrá á síðasta ári að skilfrestur á upplýsingum um gjafir og framlög er til 20. janúar næstkomandi vegna framlaga og gjafa sem bárust frá 1. nóvember til 31. desember. Form vegna þessara skila verður aðgengilegt í vefskilum Skattsins innan skamms. Sjá frekari upplýsingar hjá Ríkisskattstjóra. Að öllu jöfnu skal móttakandi vera skráður á almannaheillaskrá… Sjá meira →
Fræðslufundi um heimsmarkmiðin frestað til 3. febrúar
Fræðslufundur um heimsmarkmiðin sem átti að vera 27. janúar er frestað til fimmtudagsins 3. febrúar 2022. Að fundinum standa Almannaheill og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig hér. Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna mun halda stutta kynningu um heimsmarkmiðin og ávinning félagasamtaka að taka þau upp og samþætta í daglega starfsemi sína.… Sjá meira →
Til hamingju með dag sjálfboðaliðans
Hildur Helga Gísladóttir, varaformaður Almannaheilla, samtaka þriðja geirans. (birt í Morgunblaðinu) Sameinuðu þjóðirnar útnefndu Dag sjálfboðaliðans til að vekja athygli á öllum þeim einstaklingum sem sinna sjálfboðaliðastörfum. Almenn skilgreining á sjálfboðaliðastarfi er: Sjálfboðið vinnuframlag einstaklinga sem taka að sér að sinna valfrjálsum viðfangsefnum sem unnin eru innan ákveðins ramma með hagsmuni almennings að leiðarljósi, án þess að sjálfboðaliðinn fái greiðslu… Sjá meira →
Dagur sjálfboðaliðans sunnudaginn 5. desember
Sunnudagurinn 5. desember er alþjóðlegur dagur sjálfboðaliða. Sjálfboðaliðastarf er mikilvægur þáttur í starfsemi flestra almannaheillafélaga hvort sem þau starfa á landsvísu eða á alþjóðlegum vettvangi. Hjálparstarf kirkjunnar hefur um árabil aðstoðað fólk sem býr við kröpp kjör á Íslandi og fyrir síðustu jól nutu rúmlega 1700 fjölskyldur aðstoðar um allt land. Sjálfboðaliðastarf teygir sig einnig út fyrir landsteinanna samanber saga… Sjá meira →
Svona skráir maður félag/stofnun á Almannaheillaskrá
Öll félög sem vilja nýta sér ávinning af lögum 32/2021 á þessu ári verða að skrá sig á Almannaheillaskrá fyrir áramót. Skilyrði fyrir frádrætti hjá gefendum er að móttakandi sé skráður á almannaheillaskrá á því tímamarki sem gjöf er afhent eða framlag veitt og gildir frádráttarheimildin um framlög sem berast frá og með þeim degi sem sótt var um skráningu… Sjá meira →
Skráning á Almannaheillafélagaskrá og Almannaheillaskrá
Það hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum almannaheillafélögum að nýtt skattaumhverfi slíkra félaga tók gildi 1. nóvember síðastliðinni samanber lög nr. 32/2021 um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (skattalegir hvatar fyrir lögaðila sem starfa til almannaheilla) og lög nr. 110/2021 um félög til almannaheilla. Síðustu daga hafa borist tilkynningar og leiðbeiningar frá Skattinum um hvernig megi… Sjá meira →
Opnað hefur verið fyrir skráningu á Almannaheillaskrá
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um skráningu í Almannaheillaskrá Skattsins samanber tilkynning frá 22. nóvember. Skráningin er ætluð óhagnaðardrifnum félögum, sjóðum og stofnunum sem hafa með höndum óhagnaðardrifna starfsemi til almannaheilla. Gjafir og framlög til slíkra lögaðila skapa frádráttarheimild hjá gefendum. Listi yfir viðurkennda lögaðila hvers árs verður birtur á heimasíðu Skattsins. Umsókn um skráningu á almannaheillaskrá er rafræn í… Sjá meira →
Námskeið í jafnréttisáætlunum Horizon Europe 1. desember
Rannís heldur námskeið á netinu 1. desember nk. frá 11-12 þar sem farið verður yfir jafnréttisáætlanir í Horizon Europe, helstu kröfur og innleiðingarferla. Frá og með árinu 2022 er skylda fyrir allar opinberar stofnanir sem ætla að taka þátt í Horizon Europe að innleiða sérstaka jafnréttisstefnu innan sinnar stofnunar. Námskeiðið er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá þátttöku. Sjá meira →
Skilyrði fyrir skráningu á Almannaheillaskrá
1. nóvember 2021 var heimilaður frádráttur frá skattskyldum tekjum vegna gjafa og framlaga til lögaðila, sem uppfylla tiltekin skilyrði og eru skráð í almannaheillaskrá sem Skatturinn heldur. Sjá einnig umfjöllun á vefsíðu skattsins um Almannaheillaskrá samanber lög nr. 32/2021. Meðal þeirra skilyrða sem lögaðilar þurfa að uppfylla til þess að gjafir eða framlög til þeirra skapi frádráttarrétt hjá gefanda er… Sjá meira →